top of page

Mánud 7.des kl 19:45 Ópus Reykjavík & Litla Sauna Húsið

KÁRSNES - ÓPUS OG LITLA SAUNA HÚSIÐ KYNNA

Upcoming7. des. 2026 - 7. des. 2026
15.000 íslenskar krónur
Vesturvör

16 spots left


Um gusuna

SEIÐUR. Í Seiði mætast danshöfundurinn Íris Ásmundar og tónlistarkonan Sandrayati í þremur hitalotum þar sem hreyfing, hljóð og heilandi jurtir fléttast saman í ferðalagi um öll skilningarvitin. Viðburðurinn fer fram í Litla Sauna Húsinu, gusumeistari er Edda. Viðburðurinn hefst í bátaskýlinu kl. 19:45, gusan hefst kl 20:15. Bossa handklæði og vatnsbrúsar eru í boði fyrir alla, ásamt snakki og ávöxtum, gestir fá líka sölt í vatnið sitt. Mikilvægt er að þáttakendur mæti tilbúnir í sundfötum og komi með slopp eða stórt handklæði til að nota á milli hitalota. Gott er að hafa inniskó meðferðis þegar farið er út úr gusunni. Hvorki sturtur né salerni á staðnum. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Ópus Reykjavík og Litla Sauna Hússins.


Afbókunarstefna

Afbókanir leyfðar allt að 24 klukkustundum fyrir gusuna

bottom of page